4. október 2024

Orkuveitan | Birting grunnlýsingar

Orkuveitan | Birting grunnlýsingar

Orkuveita Reykjavíkur (Orkuveitan) hefur birt viðfesta grunnlýsingu skuldabréfa og víxla án eigendaábyrgðar, dagsetta 2. október 2024. Grunnlýsingin er staðfest af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands með viðfestu bréfi, dags. 2. október 2024.
Gögnin verða einnig birt á vefsíðu útgefanda, www.orkuveitan.is, og má nálgast þau þar á gildistíma grunnlýsingarinnar og hjá útgefanda á skrifstofu félagsins að Bæjarhálsi 1 í Reykjavík.