15. apríl 2026

Orkuveita Reykjavíkur: Lánasamningur við NIB

Orkuveita Reykjavíkur: Lánasamningur við NIB

Orkuveitan hefur undirritað lánasamning við Norræna fjárfestingarbankann (NIB) að fjárhæð 4.625 milljónir króna til fjármögnunar á uppbyggingu við Hellisheiðarvirkjun.

Fjárfestingin felur meðal annars í sér aukna varmaframleiðslu og borun nýrrar vinnsluholu og er ætlað að styrkja afhendingaröryggi og mæta vaxandi eftirspurn á höfuðborgarsvæðinu.