Orkuveita Reykjavíkur: Góð rekstrarafkoma Orkuveitunnar á fyrsta ársfjórðungi 2026

Orkuveitan skilar sterkri rekstrarafkomu á fyrsta ársfjórðungi 2026. Rekstrartekjur námu 20,7 milljörðum króna, sem er 10,1% aukning frá sama tímabili árið áður. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 13,7 milljarðar króna, 10,2% hærri en á fyrsta ársfjórðungi 2025, og rekstrarhagnaður (EBIT) nam 9,1 milljarði króna, sem jafngildir 12,0% aukningu milli ára.
Orkuveitan (Orkuveita Reykjavíkur) skilar sterkri rekstrarafkomu á fyrsta ársfjórðungi 2026. Rekstrartekjur námu 20,7 milljörðum króna, sem er 10,1% aukning frá sama tímabili árið áður. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 13,7 milljarðar króna, 10,2% hærri en á fyrsta ársfjórðungi 2025, og rekstrarhagnaður (EBIT) nam 9,1 milljarði króna, sem jafngildir 12,0% aukningu milli ára.
Þetta kemur fram í samandregnu árshlutauppgjöri samstæðu fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2026. Reikningurinn var samþykktur af stjórn í dag. Innan samstæðunnar eru, auk móðurfélagsins, Veitur, Orka náttúrunnar, Ljósleiðarinn og Carbfix.
Hagnaður tímabilsins nam 3,1 milljarði króna, samanborið við 4,5 milljarða króna á sama tímabili árið áður. Lækkunin skýrist fyrst og fremst af óhagstæðri þróun fjármagnsliða, auk þess sem atburðir tengdir starfsemi Norðuráls á Grundartanga höfðu áhrif á uppgjör fyrsta ársfjórðungs. Uppkeyrsla Norðuráls hófst á fjórðungnum en óvissa ríkir áfram um þróun mála og endanleg áhrif á rekstur og afkomu Orkuveitunnar.
Veltufé frá rekstri nam 10,7 milljörðum króna, sem er 14,1% aukning milli ára.
Efnahagur Orkuveitunnar er áfram traustur. Eiginfjárhlutfall nam 52,9% í lok mars og hefur hækkað frá áramótum. Lausafjárstaða Orkuveitunnar nam 41,5 milljörðum króna í lok tímabilsins þegar tekið er tillit til handbærs fjár, bundinna innstæðna og óádreginna lánalína.
Sævar Freyr Þráinsson forstjóri:
„Þetta uppgjör sýnir styrk og stöðugleika í kjarnastarfseminni, sem við erum að efla enn frekar. Fjárfestingar í auknu afli hitaveitna, aukinni vernd vatnsveitna og umhverfisvænni fráveitum eru í okkar áætlunum. Kröftug og snörp viðbrögð vegna bilana hjá Norðuráli á Grundartanga drógu verulega úr áhrifum tekjutapsins,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar. „Enn er þar þó óvissa vegna málreksturs og framvindu viðgerða í álverinu.“
Vegferðin
Á ársfundi Orkuveitunnar 16. apríl 2026 var farið yfir stefnumótandi áherslur samstæðunnar næstu ár. Þar á meðal voru kynnt áform Orkuveitunnar til nýtingar á djúpum, ofurheitum jarðhita. Jafnframt var sagt frá nýrri orkuöflun á Hengilssvæðinu og við Hagavatn og nýsköpunarverkefnum tengdum nýtingu glatvarma og kolefnisbindingu á Grundartanga. Verkefnin miða að sjálfbærri orkuvinnslu og aukinni nýtingu í þágu samfélaga úr hringrás orkustrauma.
Upptaka af Ársfundi Orkuveitunnar 2026.
Yfirlit stjórnenda
| Rekstrarár | 2026 | 2025 | 2024 | 2023 | 2022 |
|---|---|---|---|---|---|
| Fjárhæðir eru á verðlagi hvers árs í milljónum kr. | 1.1. - 31.3. | 1.1. - 31.3. | 1.1. - 31.3. | 1.1. - 31.3. | 1.1. - 31.3. |
| Rekstrartekjur | 20.748 | 18.839 | 17.841 | 16.236 | 15.664 |
| Rekstrarkostnaður | ( 7.006) | ( 6.372) | ( 6.862) | ( 6.390) | ( 5.369) |
| þ.a. orkukaup og flutningur | ( 1.402) | ( 1.542) | ( 2.142) | ( 2.289) | ( 1.847) |
| EBITDA | 13.742 | 12.467 | 10.979 | 9.846 | 10.295 |
| Afskriftir | ( 4.595) | ( 4.303) | ( 4.107) | ( 3.829) | ( 3.302) |
| Rekstrarhagnaður EBIT | 9.147 | 8.164 | 6.873 | 6.017 | 6.993 |
| Sjóðstreymi | |||||
| Innleystar vaxtatekjur | 26 | 82 | 54 | 31 | 8 |
| Greidd vaxtagjöld | ( 2.194) | ( 1.865) | ( 1.802) | ( 1.465) | ( 1.039) |
| Handbært fé frá rekstri | 9.255 | 10.506 | 8.144 | 8.072 | 3.741 |
| Veltufé frá rekstri | 10.708 | 9.387 | 7.986 | 7.893 | 7.962 |
| Lausafé | 31.3.2026 | 31.3.2025 | 31.3.2024 | 31.3.2023 | 31.3.2022 |
| Bundnar innstæður og markaðsverðbréf | 13.460 | 12.464 | 9.897 | 12.112 | 15.046 |
| Handbært fé | 7.832 | 22.309 | 8.618 | 4.876 | 7.322 |
| Óádregnar lánalínur | 20.245 | 15.203 | 10.265 | 9.100 | 7.570 |
| Lausafé samtals | 41.537 | 49.976 | 28.779 | 26.088 | 29.938 |
Tengiliður:
Snorri Hafsteinn Þorkelsson
framkvæmdastjóri fjármála
snorri.hafsteinn.thorkelsson@orkuveitan.is