Orkan sem skapar verðmæti

Ársfundur Orkuveitunnar fór fram í síðustu viku en á fundinum var horft til framtíðar þar sem sjónum var beint að því hvernig aukin orkuöflun og ábyrg auðlindanýting skapa raunveruleg verðmæti fyrir samfélagið og styrkja samkeppnishæfni Íslands.
Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar, talaði meðal annars um áform Orkuveitunnar að fjárfesta fyrir um 230 milljarða króna á næstu fimm árum m.a. í uppbyggingu nauðsynlegra innviða, nýju jarðhitasvæði á Meitlum, aukinni nýtingu birtuorku, vindorku, vatsafli við Hagavatn og áframhaldandi þróun IDDP-djúpborunarverkefnisins, sem jafnframt var að hljóta 1,5 milljarða króna styrk frá Evrópusambandinu.
Hera Grímsdóttir, framkvæmdastýra rannsókna og nýsköpunar fjallaði um mikilvægi vísinda í orkuöflun framtíðar og hvernig sú þekking sem byggst hefur upp á Íslandi í jarðhita er að skapa áður óséð tækifæri. Orkuveitan er með metnaðarfull markmið þegar kemur að orkuöflun. Það snýr ekki að einhverju einu verkefni, heldur samfelld uppbygging og kerfisbundin vinna við að kanna og nýta auðlindina.
Rannsóknir okkar í Meitlum eru að skila mjög jákvæðum og lofandi niðurstöðum. Við höfum borað tvær rannsóknarholur niður á um 1700 metra dýpi. Í fyrri holunni mælist allt að 270 gráðu hiti og frumniðurstöður benda til mikillar vinnsluhæfni svæðisins. Seinni holan var fyrsta stefnuboraða grannholan á Íslandi inná á nýtt svæði og hún sýnir góða lekt og tengsl við jarðhitakerfið á Hellisheiði. Báðar holurnar voru grann- eða slimholur svo framkvæmdirnar leiddu af sér minna umhverfisrask en fyrri holur og lægri kostnað. Hvort hægt verði að nýta nýja svæðið sem uppbót fyrir virkjun Orku náttúrunnar eða sem nýtt vinnslusvæði kemur í ljós eftir því sem frekari niðurstöður rannsókna fást.
Þetta er stórt skref og ljóst að Meitlarnir eru eitt áhugaverðasta þróunarsvæði Orkuveitunnar í dag og mikilvægur hluti af því að tryggja orkuöryggi til framtíðar.
Þó að jarðhitinn sé kjarninn í okkar starfsemi þá er ekki hægt að horfa á einn orkugjafa sem eina lausn, við þurfum að hugsa þetta sem heild eða kerfi. Með fleiri orkukostum er hægt að jafna álag í kerfinu og auka sveigjanleika gagnvart nýrri atvinnuuppbyggingu, verðmætasköpun og frekari rafvæðingu vegna orkuskipta.
Brynja Ragnarsdóttir, forstöðukona vatnsmiðla Veitna, fór meðal annars yfir sögu hitaveitunnar á Íslandi beindi sjónum að ört stækkandi samfélagi, en á næstu 12 árum er áætlað að okkur hafi fjölgað um allt að 110.000. Þetta hefur bein áhrif á veitukerfin okkar og nú er komið að þriðju hitaveituvæðingunni. Hún felst í að finna meiri forða til að mæta aukinni eftirspurn, efla flutningskerfið til að geta flutt meira af heitu vatni og vera áfram í góðu samstarfi við sveitarfélögin sem Veitur þjónusta og styðja við þeirra uppbyggingaráform.
Fulltrúar atvinnulífsins og stjórnvalda tóku þátt í pallborði um framtíð orkunnar á Íslandi og sköpuðust góðar umræður um tækifærin sem felast í aukinni orkuöflun, nýsköpun og uppbyggingu innviða. Birna Bragadóttir stjórnandi verðmætasköpunar hjá Orkuveitunni, stýrði umræðum. Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar, Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra, Edda Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix, og Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins sátu í pallborði.
Við þökkum þátttakendum á fundinum kærlega fyrir góðan ársfund og þökkum öllum þeim gestum sem mættu á Bæjarhálsinn fyrir komuna og þeim sem fylgdust með í streymi fyrir áhorfið.
Hér má nálgast upptöku af fundinum í heild sinni.







