5. febrúar 2025

Orka náttúrunnar tekur þátt í Rafleiðslu í Elliðaárstöð á Safnanótt

Orka náttúrunnar tekur þátt í Rafleiðslu í Elliðaárstöð á Safnanótt

Orka náttúrunnar er stolt af því að taka þátt í spennandi og rafmögnuðum viðburði á Safnanótt í samstarfi við Elliðaárstöð. Rafleiðsla verður nú haldin öðru sinni í hinum sögufræga vélarsal gömlu rafstöðvarinnar en Elliðaárstöð þjónar nýjum tilgangi í dag og er nú miðstöð fyrir fjölbreytta fræðslu- og menningarstarfsemi á þessum fallega stað í hjarta Reykjavíkur.  

Á Rafleiðslu verður gestum  boðið upp á einstaka upplifun þar sem tónlist, hugleiðsla og djúp hlustun mætast í áhrifaríku umhverfi. Dansað er á milli fyrirfram samdra tónsmíða og spuna í flæðandi tónlistarupplifun, þar sem gestir geta komið og farið að vild á meðan á viðburðinum stendur. 

Tónlistarfólkið sem kemur fram er Osmē (Benedikt Reynisson, Helgi Örn Pétursson og Þórður Bjarki Arnarson), R • O • R (Gyða Valtýsdóttir og Úlfur Hansson), Sóley (Sóley Stefánsdóttir) og Svartþoka (Día Andrésdóttir, Ólöf Rún Benediktsdóttir og Unnur Björk Jóhannsdóttir) ásamt nýmiðlalistamanninum Leó Stefánssyni. 

Rafleiðsla er hluti af Vetrarhátíð og er aðgangur ókeypis fyrir öll. Viðburðurinn fer fram 7. febrúar frá kl. 18:00 til 21:00 og eru gestir hvattir til að koma og upplifa einstaka tónlistar- og hugleiðslustund í einstöku umhverfi.