Orka náttúrunnar mældist hæst í Íslensku ánægjuvoginni sjötta árið í röð

Orka náttúrunnar tók við viðurkenningu Íslensku ánægjuvogarinnar í dag og er því númer eitt á markaði raforkusala á Íslandi samkvæmt niðurstöðum mælinganna. Þetta er sjötta árið í röð sem okkur hlotnast sá heiður að hljóta viðurkenninguna.
Við erum sérstaklega ánægð með þennan stórkostlega árangur og hann er hvatning til þess að halda áfram að standa okkur vel, setja viðskiptavininn í öndvegi og halda áfram á þeirri vegferð sem hófst fyrir 11 árum síðan þegar Orka náttúrunnar var stofnuð.
Í okkar huga er þó engin tilviljun að Orka náttúrunnar hljóti þessa viðurkenningu því við höfum alltaf lagt mikla áherslu á, og munum halda áfram, að þjónusta, ráðleggja og hjálpa okkar viðskiptavinum þegar kemur að sölu á rafmagni, hvort sem það er til heimila, fyrirtækja eða rafbílaeigenda.
„Þessi viðurkenning er risastórt hrós til okkar frábæru starfsmanna sem sinna samskiptum og þjónustu við viðskiptavini Orku náttúrunnar sem eru tugþúsundir talsins. Þjónusta er í öndvegi í öllum okkar störfum og metnaður starfsmanna okkar fyrir því að veita framúrskarandi þjónustu á sér engin takmörk“, segir Jóhann Ingi Magnússon, forstöðumaður Sölu og þjónustu hjá ON.
Íslenska ánægjuvogin er félag í eigu Stjórnvísi og er framkvæmd hennar í höndum Prósents. Markmið verkefnisins er að láta fyrirtækjum í té samræmdar mælingar á ánægju viðskiptavina en einnig nokkrum öðrum þáttum sem hafa áhrif á hana s.s. ímynd, mat á gæðum og tryggð viðskiptavina.
Takk fyrir okkur kæru viðskiptavinir ON og hlökkum til komandi árs með ykkur.