19. janúar 2024

Orka náttúrunnar mældist hæst í Ánægjuvoginni fimmta árið í röð

Orka náttúrunnar mældist hæst í Ánægjuvoginni fimmta árið í röð

Orka náttúrunnar tók við viðurkenningu Íslensku ánægjuvogarinnar í dag og er því númer eitt á markaði raforkusala á Íslandi samkvæmt niðurstöðum mælinganna. Þetta er fimmta árið í röð sem okkur hlotnast sá heiður að hljóta viðurkenninguna.

Við erum sérstaklega ánægð með þennan stórkostlega árangur og hann er hvatning til þess að halda áfram að standa okkur vel, setja viðskiptavininn í öndvegi og halda áfram á þeirri vegferð sem hófst fyrir 10 árum síðan þegar Orka náttúrunnar var stofnuð.

Í okkar huga er þó engin tilviljun að Orka náttúrunnar hljóti þessa viðurkenningu því við höfum alltaf lagt mikla áherslu á, og munum halda áfram, að þjónusta, ráðleggja og hjálpa okkar viðskiptavinum þegar kemur að sölu á rafmagni.

Íslenska ánægjuvogin er félag í eigu Stjórnvísi og er framkvæmd hennar í höndum Prósents. Markmið verkefnisins er að láta fyrirtækjum í té samræmdar mælingar á ánægju viðskiptavina en einnig nokkrum öðrum þáttum sem hafa áhrif á hana s.s. ímynd, mat á gæðum og tryggð viðskiptavina.

Takk fyrir okkur kæru viðskiptavinir ON.