18. desember 2020

OR og Reykjavíkurborg styrkja uppsetningu hleðslubúnaðar

OR og Reykjavíkurborg styrkja uppsetningu hleðslubúnaðar
OR og Reykjavíkurborg hafa styrkt 31 húsfélag við uppsetningu hleðslubúnaðar fyrir rafbíla. „Það er náttúrulega mjög þægilegt að geta rennt í hlað og stungið beint í samband í stað þess að vera með snúru inn um glugga íbúðar á annarri hæð í blokk,“ segir Pétur Karlsson þrívíddarhönnuður og íbúi við Eskihlíð 10a í Reykjavík. Pétur og aðrir íbúar Eskihlíðar 10 settu upp tvær hleðslustöðvar með samtals fjórum tenglum nú í september og hlutu styrk frá OR og Reykjavíkurborg til verksins.