10. febrúar 2024

ON opnar hleðslustöðvar sínar fyrir íbúa á Reykjanesi

ON opnar hleðslustöðvar sínar fyrir íbúa á Reykjanesi

Í samráði við Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur Orka náttúrunnar ákveðið að bjóða rafbílaeigendum að hlaða frítt í öllum Hverfahleðslum ON á Reykjanesi á meðan unnið er að því að koma hitaveitunni aftur í gang.
Íbúar geta því hlaðið frítt á 30 AC tengjum á 7 staðsetningum okkar með ON-appinu eða ON-lykli.

Staðsetningar ON í Reykjanesbæ eru:

  • Golfklúbbur Suðurnesja
  • Ráðhús Reykjanesbæjar
  • Fjölbrautarskóli Suðurnesja
  • Sundmiðstöðin í Reykjanesbæ
  • Selið Vallarbraut
  • Stapaskóli
  • Keilir

ON hvetur alla rafbílaeigendur að nýta sér Hverfahleðslu ON í stað þess að hlaða heima, hvort sem það er gert í hleðslustöð eða ekki. Þjónusta ON er opin allan sólarhringinn í síma 591-2700 ef íbúa vantar aðstoð við að hlaða.
ON skorar á íbúa að fylgjast vel með stöðu á hleðslu í ON-appinu og tryggja að sem flest geti nýtt sér þjónustu ON.