10. apríl 2026
ON kemur til móts við rafbílaeigendur og knýr áfram orkuskiptin

Í ljósi þess að stjórnvöld hafa ákveðið að lækka virðisaukaskatt á eldsneytisverði á dælu úr 24% í 11% ætlar ON að lækka verð á almennri verðskrá allra hraðhleðslustöðva hringinn í kringum landið.
Með þessu kemur Orka náttúrunnar til móts við rafbílaeigendur með svipuðum hætti og efnahagsaðgerðum ríkistjórnar er ætlað að gera til að hemja verðbólgu og bregðast við verðhækkunum á olíu vegna stríðsátaka við Persaflóa. Markmiðið er að draga úr áhrifum verðhækkana á íslensk heimili og fyrirtæki.