Nýtt fyrirtæki í jarðhitagarðinn?

Svissneskt fyrirtæki sem er áhugasamt um að vinna vetni og metan í Jarðhitagarði Orku náttúrunnar við Hellisheiðarvirkjun er í þann mund að hefja mat á umhverfisáhrifum þessa. Nordur heitir fyrirtækið og hefur gert viljayfirlýsingu við ON um aðstöðu og helstu aðföng. Það er enda í samræmi við stefnu ON að nýta sem best straumana sem falla til við orkuvinnsluna í virkjuninni. Fyrir í Jarðhitagarðinum er smáþörungavinnsla Algaennovation, sem auk rafmagns og koltvíoxíðs fær einnig ferskt vatn frá ON.
Nordur, sem nú er að hefja matsferlið með opinberri auglýsingu, hyggst fá koltvíoxíð og rafmagn frá ON. Rafmagnið yrði einkum nýtt til að vinna vetni á staðnum sem blandað er við koltvíoxíð til að fá út metan. Í hugmyndum fyrirtækisins er að selja afurðirnar hér á landi og í útlöndum.