20. október 2025
Ný vísindasýning fyrir alla fjölskylduna!

Vísindasýningin Hjartastrengir & vatnsæðar opnaði skömmu fyrir helgi. Sýningunni er ætlað að draga fram hinar mikilvægu lífæðar samfélagsins, veitukerfin, á skiljanlegan og skemmtilegan hátt. Á sama hátt og líkami okkar er byggður upp á lífsnauðsynlegum líffærakerfum líkt og blóðrásarkerfi, taugakerfi og stoðkerfi þá eru veitukerfi borgarinnar mjög nauðsynleg. Til að mynda í að veita okkur... Read more »
Vísindasýningin Hjartastrengir & vatnsæðar opnaði skömmu fyrir helgi. Sýningunni er ætlað að draga fram hinar mikilvægu lífæðar samfélagsins, veitukerfin, á skiljanlegan og skemmtilegan hátt.
Á sama hátt og líkami okkar er byggður upp á lífsnauðsynlegum líffærakerfum líkt og blóðrásarkerfi, taugakerfi og stoðkerfi þá eru veitukerfi borgarinnar mjög nauðsynleg. Til að mynda í að veita okkur hreint vatn, hita upp húsin okkar, veita okkur rafmagn og halda borginni hreinni og heilsusamlegri.
Á sýningunni er meðal annars hægt að kíkja í Kúkakósí, framleiða rafmagn úr morgunmatnum sínum, búa til sína eigin Jarðhitaofurhetju. Ásamt því að hlusta á ferðalag Diddu dropa, Völlu varma, Raffa rafeindar og Kúksa kúks úr símtólum.
Sýningin er unnin af Margréti Hugadóttur, leiðtoga Vísindamiðlunar í Elliðaárstöð og Elísabetu Jónsdóttur, sýningarstjóra Elliðaárstöðvar. Teikningar eru eftir hæfileikaríku Ninnu Þórarinsdóttur.