2. nóvember 2026

Netöryggi í brennidepli hjá Orkuveitunni

Netöryggi í brennidepli hjá Orkuveitunni

Í október var evrópski netöryggismánuðurinn og af því tilefni setti Orkuveitan net- og upplýsingaöryggi sérstaklega í brennidepil. Í mánuðinum var fjölbreytt dagskrá með það að markmiði að auka vitund og þekkingu starfsfólks og styrkja öryggismenningu innan fyrirtækisins enn frekar.

Netöryggi er mikilvægur þáttur í öruggum og samfelldum rekstri Orkuveitunnar. Orkuveitan leggur áherslu á hagkvæma nýtingu þeirra tæknilausna sem eru í hennar eigu og umsjón og þar gegnir stjórnun upplýsingaöryggis lykilhlutverki. Markmiðið er meðal annars að draga úr áhættu og koma í veg fyrir atvik sem gætu valdið tjóni eða truflun á starfseminni.

Netöryggi gert sýnilegt í daglegu starfi

Netöryggi byggir þó ekki eingöngu á tæknilegum vörnum. Þekking, árvekni og góðar venjur starfsfólks eru einnig mikilvægur hluti af sterkri öryggismenningu.

Þess vegna var ákveðið að nýta netöryggismánuðinn til að nálgast efnið frá ólíkum hliðum og gera það sýnilegt og aðgengilegt í daglegu starfi.

Einn viðamesti liður mánaðarins voru Flóttaherbergi (Escape Rooms) sem voru sett upp fyrir starfsfólk sem þurfti að vinna saman að því að leysa þrautir sem allar snertu á netöryggi og -ógnum.

Verkefnin byggðu á áskorunum úr heimi upplýsingaöryggis og komu meðal annars inn á falska tölvupósta, aðgangsstýringar og gagnavernd. Í flóttaherbergjunum fékk starfsfólk tækifæri til að nálgast viðfangsefnið á annan hátt en í hefðbundinni fræðslu og velta fyrir sér öryggi í aðstæðum sem minntu á raunveruleikann. Starfsfólk stóð sig gríðarlega vel í að leysa þrautirnar og skemmst er frá því að segja að allir hópar sluppu út úr herbergjunum.

Með netöryggismánuðinum var lögð sérstök áhersla á að auka þekkingu og vitund um upplýsingaöryggi og tengja viðfangsefnið við daglegt starf. Fræðsla og aukin vitund um netöryggi er mikilvægur hluti af því að viðhalda sterkri öryggismenningu innan Orkuveitunnar.