28. október 2026
Nemendur Garðyrkjuskólans kynntu sér vistheimt á Hellisheiði

Um 60 nemendur úr Garðyrkjuskólanum heimsóttu Hellisheiðarvirkjun í vikunni þar sem þeir kynntu sér landgræðslu og vistheimt á virkjanasvæðum Orku náttúrunnar. Í heimsókninni fengu nemendurnir innsýn í þær aðferðir sem ON nýtir til að endurheimta staðargróður, vernda líffræðilega fjölbreytni og draga úr áhrifum framkvæmda á náttúruna.