28. nóvember 2019

Mosaflísar verðlaunaðar

Mosaflísar verðlaunaðar
Í dag voru veitt verðlaun fyrir MeMa - Nýsköpunarhraðal framhaldsskólanna en Veitur eru einn af aðalstyrktaraðilum verkefnisins sem miðar að því að nýta sköpunarkraft ungs fólks til að takast á við áskoranir framtíðarinnar. Í ár fólst áskorunin í því að búa til frumgerð vöru sem nýtist þegar tekist er á við áskoranir í loftslagmálum sem er eitt af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Kröfur sem gerðar eru til þeirra hugmyndar og frumgerðar sem hlýtur verðlaunin er að hún sé líkleg til að hafa jákvæð áhrif á loftslagsmál og eigi möguleika á því að vera innleidd eftir frekari þróun.