26. janúar 2021

Mistök ástæða vatnstjóns í Háskóla Íslands

Mistök ástæða vatnstjóns í Háskóla Íslands
– rýni á verklagi hafin  – mat á tjóni og bótaábyrgð liggur ekki fyrir Mistök voru gerð við framkvæmdir á vegum Veitna við Suðurgötu sem ollu því að stofnlögn vatns fór í sundur þannig að vatn flæddi inn í byggingar Háskóla Íslands. Verið er að endurnýja lögnina og veggur lokahúss, sem styður við hana, var rofinn of snemma í verkinu. Þar sem enn var þrýstingur á lögninni fór hún í sundur á samskeytum með þessum afleiðingum.