25. febrúar 2022

Miklar truflanir í veitukerfum

Miklar truflanir í veitukerfum
Miklar truflanir hafa verið nú síðdegis á veitukerfum Veitna. Orsakast þær af höggi á rafdreifikerfið og spennufalli í kerfi Landsnets vegna óveðurs og eldinga.   Nær allar dælur Veitna, í vatnsveitu, hitaveitu og fráveitu, allt frá Grundarfirði og austur á Hvolsvöll, stöðvuðust við þessar truflanir. Verið er að ræsa öll kerfi aftur og standa vonir til að heitt og kalt vatn  verði farið að streyma eðlilega á næstu klukkustund, allsstaðar þar sem er rafmagn. Nokkurt rafmagnsleysi er þó enn víða á Vesturlandi.