1. júlí 2025
Meistarar í Meistarabúðum

Sextán hressir krakkar tóku þátt í Meistarabúðum, sumarnámskeiði Hugmyndasmiða sem fram fór í liðinni viku. Í Meistarabúðum er lögð áhersla á að efla krakka til hönnunar og smíða með endurnýttum efnivið. Áskorunin var að hanna leiki eða leiktæki fyrir útisvæði. Mögulega eitthvað sem hægt væri að nýta á framtíðarleikvöllum. Hugmyndirnar létu ekki á sér standa... Read more »
Sextán hressir krakkar tóku þátt í Meistarabúðum, sumarnámskeiði Hugmyndasmiða sem fram fór í liðinni viku. Í Meistarabúðum er lögð áhersla á að efla krakka til hönnunar og smíða með endurnýttum efnivið. Áskorunin var að hanna leiki eða leiktæki fyrir útisvæði. Mögulega eitthvað sem hægt væri að nýta á framtíðarleikvöllum. Hugmyndirnar létu ekki á sér standa en til urðu meðal annars risa vélmenna leikvöllur, bátaleikir, leikvöllur með eldgosi og allskonar tegundir af klifurgrindum.
Þá var sjálfbærni höfð að leiðarljósi í einum leiknum sem var hálfgerður ruslafötuleikur sem átti að gera það að verkum að fólki langaði að henda í ruslið.
Krakkarnir nefndu leikvöllinn Undragarðinn og var margt undravert við þann garð.
Elliðaárstöð hefur lagt áherslu á að efla frumkvöðlastarf og nýsköpun og þetta er svo sannarlega hluti af því. Það má því segja að Elliðaárstöð sé sannkölluð hugmyndastöð.