14. desember 2025

Margrét og Kúksi kúkur á þriðja í aðventu

Margrét og Kúksi kúkur á þriðja í aðventu
Gleðilegan þriðja í aðventu Fylgist með á aðventunni þegar starfsfólk Elliðaárstöðvar segir frá jólunum sínum og tengingu við orkuverurnar. Margrét, leiðtogi vísindamiðlunar og Kúksi kúkur eru hér saman á góðri stundu. ,,Þegar ég var lítil var ég svo heppin að eftir matinn á aðfangadagskvöld fórum við fjölskyldan beint í að opna pakkana. Uppvaskið mátti bíða.... Read more »

Gleðilegan þriðja í aðventu

Fylgist með á aðventunni þegar starfsfólk Elliðaárstöðvar segir frá jólunum sínum og tengingu við orkuverurnar.

Margrét, leiðtogi vísindamiðlunar og Kúksi kúkur eru hér saman á góðri stundu.

,,Þegar ég var lítil var ég svo heppin að eftir matinn á aðfangadagskvöld fórum við fjölskyldan beint í að opna pakkana. Uppvaskið mátti bíða. En svo kom að því á endanum auðvitað og þegar við vöskuðum upp þá gættum við þess að engin olía færi í niðurfallið í vaskinum. Olía og fita geta nefnilega valdið stíflum í pípunum.  Ég passa sérstaklega vel upp á þetta svo að hann Kúksi kúkur vinur minn eigi greiða leið í gegnum lagnakerfið" segir Margrét
Njótið dagsins og við minnum á síðustu laugardagsopnun fyrir jól 20. desember kl. 13-16