31. mars 2022
Málþing um bætta orkunýtingu bygginga

Veitur og Grænni byggð buðu í dag til málþings um bætta orkunýtingu bygginga. Á þinginu héldu 10 fyrirlesarar frá fyrirtækjum og stofnunum fróðleg erindi er fjölluðu um bætta nýtingu orku út frá ýmsum sjónarhornum, svo sem reglugerðum, hönnun, orkusparandi snjallkerfum og öðrum lausnum.
Veitur reka hitaveitur víða á suðvesturhorni landsins sem þjóna um 70% landsmanna. Mikil aukning hefur verið í notkun á heitu vatni undanfarin ár og gera spár ráð fyrir að hún muni aukast gríðarlega á næstu árum og áratugum.