4. febrúar 2026

Lovísa ráðin til Orkuveitunnar

Lovísa ráðin til Orkuveitunnar

© Einar Örn

Lovísa Árnadóttir hefur verið ráðin í starf samskiptastýru Rannsókna og nýsköpunar hjá Orkuveitunni.

Lovísa býr yfir mikilli þekkingu og reynslu á sviði orkumála en hún starfaði í áratug sem upplýsingafulltrúi Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja. Þar bar hún meðal annars ábyrgð á innri og ytri samskiptum, fjölmiðlasamskiptum, miðlun efnis, viðburðahaldi og ímyndarmálum, auk þess sem hún var framleiðandi og þáttastjórnandi hlaðvarpsins Lífæðar landsins.

Áður starfaði Lovísa um árabil hjá RÚV, meðal annars sem frétta- og dagskrárgerðarmaður. Hún hefur einnig starfað við markaðs- og ráðgjafarstörf og setið í stjórnum félaga á sviði orku- og jarðhitamála.

Lovísa er með meistaragráðu í blaða- og fréttamennsku frá Háskóla Íslands og B.A. gráðu í bókmenntafræði frá sama skóla.

„Orkuveitan er gríðarlega spennandi fyrirtæki með metnaðarfulla framtíðarsýn. Verkefnin og vegferð fyrirtækisins í orku-, nýsköpunar- og loftslagsmálum eru bæði krefjandi og mikilvægt samfélagslegt verkefni. Ég hlakka til að taka þátt í opnu og upplýstu samtali við samfélagið og stuðla að því að nýting auðlinda okkar skapi verðmæti, styðji við sjálfbæra þróun og betra samfélag,“ segir Lovísa.

Rannsóknir og nýsköpun hjá Orkuveitunni vinnur að bættri auðlindanýtingu, kolefnishlutleysi og aukinni orkuframleiðslu. Mikil áhersla er lögð á virðisaukandi lausnir og öfluga nýsköpun. Meðal verkefna má nefna íslenska djúpborunarverkefni (IDDP) sem Orkuveitan hefur tekið þátt í frá upphafi, rannsóknir og undirbúning nýrra vindorku- og jarðhitakosta, og fjölmörg nýsköpunarverkefni sem hlotið hafa styrki frá t.d. Evrópusambandinu.

Lovísa hefur þegar hafið störf.