9. desember 2021

Ljósleiðarinn fær sjálfbærnimerki Landsbankans

Ljósleiðarinn fær sjálfbærnimerki Landsbankans

Ljósleiðarinn ehf. hefur fengið sjálfbærnimerki Landsbankans vegna uppsetningar og rekstrar ljósleiðara. Merkið er veitt þeim fyrirtækjum sem uppfylla skilyrði um sjálfbærni sem sett eru fram í sjálfbærri fjármálaumgjörð bankans og standast strangar kröfur um umhverfisvæn verkefni.

Birna Bragadóttir, stjórnarformaður Ljósleiðarans:

„Við erum afar ánægð með að fá þessa viðurkenningu frá Landsbankanum. Hún staðfestir að starfsemi Ljósleiðarans stenst strangar kröfur um samfélagslega ábyrgð. Við stefnum að því að reksturinn hjá okkur verði kolefnishlutlaus innan skamms en í eðli sínu er rekstur okkar öfluga ljósleiðaranets, sem knúið er grænni orku, umhverfisvænn því hann hefur gert svo gríðarlega mörgum kleift að smækka líka sín kolefnisspor.“

Árni Þór Þorbjörnsson, framkvæmdastjóri Fyrirtækjasviðs Landsbankans:

„Það er mjög ánægjulegt að veita Ljósleiðaranum sjálfbærnimerki bankans vegna lagningar og rekstrar á ljósleiðara. Með sjálfbærnimerkinu viljum við styðja viðskiptavini okkar í sjálfbærnivinnu þeirra.  Ljósleiðarinn hefur frá stofnun veitt heimilum og fyrirtækjum aðgang að hágæða ljósleiðara í stað samskiptakerfa sem nýta koparbúnað. Það samræmist heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun vel.“