12. desember 2019
Ljósleiðaravæðingu í þéttbýli á höfuðborgarsvæðinu lokið

Ljósleiðarinn nær nú til allra heimila í þéttbýli Kópavogs, Seltjarnarness, Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Mosfellsbæjar og Reykjavík. Sveitarstjórar þeirra sex sveitarfélaga sem eru á höfuðborgarsvæðinu taka á móti staðfestingu þess efnis frá Gagnaveitu Reykjavíkur.
Ljósleiðari forsenda snjallvæðingar sveitarfélaga
Sveitarfélögin eru að ryðja brautina í stafrænni þjónustu við íbúa og í þátttöku þeirra í stjórn sveitarfélaganna í gegnum netið. Ljósleiðaravæðing styður einnig við atvinnulíf, eflir nýsköpun með öflugum innviðum og er grunnur að fimmtu kynslóð farsímakerfa.