Ljósleiðarinn ehf.: Tilkynning frá Ljósleiðaranum
Hluthafafundur Ljósleiðarans ehf., sem nú er að fullu í eigu Orkuveitu Reykjavíkur, samþykkti í dag, með fyrirvara um staðfestingu eigenda Orkuveitunnar, að veita umboð til aðgerða sem leitt geta til breytts eignarhalds á Ljósleiðaranum. Ljósleiðarinn er innviðafyrirtæki í gagnaflutningum og þjónar fjarskiptafyrirtækjum, heimilum og atvinnulífi víða um land. Umboðið, hljóti það staðfestingu eigenda, verður í höndum forstjóra sem fer með hlutafé Orkuveitunnar í Ljósleiðaranum.

Samþykkt hluthafafundarins, sem gerð var að undangengnum samþykktum stjórna Ljósleiðarans og Orkuveitunnar, felur í sér umboð til margvíslegra aðgerða sem allar hafa það markmið að hámarka verðmæti Ljósleiðarans fyrir eigendur, hvort sem niðurstaðan verður áframhaldandi eignarhald Orkuveitunnar, nýir fjárfestar eignist félagið að hluta eða í heild eða möguleg skráning þess á markað.
Árið 2023 veittu eigendur Orkuveitunnar – Reykjavíkurborg, Akraneskaupstaður og Borgarbyggð – tímabundið umboð til aukningar hlutafjár og sölu nýrra hluta. Þrátt fyrir áhuga fjárfesta á félaginu leiddi ferlið ekki til samninga en sýndi fram á ýmis tækifæri á markaðnum fyrir Ljósleiðarann. Eigendum Orkuveitunnar hefur verið haldið upplýstum um þróun mála frá því fyrra umboð rann út. Eigendafundur Orkuveitunnar, skipaður fulltrúum sveitarfélaganna þriggja, þarf að staðfesta áformin. Áherslur um undirbúning að sölu Ljósleiðarans er að finna í samstarfssáttmála meirihlutaflokkanna í Reykjavík frá í vor.
Ljósleiðarinn hóf formlega starfsemi árið 2007 sem Gagnaveita Reykjavíkur og hefur byggt upp víðfeðmt net ljósleiðaralagna til heimila og fyrirtækja. Með þessu hefur fyrirtækið verið undirstaða margvíslegrar samkeppni á íslenskum fjarskiptamarkaði. Ör stafræn þróun samfélagsins skapar félaginu frekari vaxtartækifæri á markaði fyrir örugga og afkastamikla gagnaflutninga.
Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hefur umsjón með því ferli sem fram undan er, fáist til þess umboð frá eigendum Orkuveitunnar.
Þuríður Björg Guðnadóttir, framkvæmdastýra Ljósleiðarans, segir það hafa verið, séu og verði umbrot á fjarskiptamarkaði. „Ljósleiðarinn er gríðarlega mikilvæg undirstaða lífsgæða í okkar sífellt tæknivæddari heimi og býr yfir umtalsverðum tækifærum til frekari vaxtar. Við viljum styrkja félagið til frambúðar, standa vörð um þau verðmæti sem byggð hafa verið upp og kanna með opnum huga hvaða eignarhald og samstarf styður best við áframhaldandi uppbyggingu félagsins.“
Tengiliður:
Þuríður Björg Guðnadóttir
framkvæmdastýra Ljósleiðarans
thuridur.bjorg.gudnadottir@ljosleidarinn.is