4. apríl 2025
Líf og fjör í Elliðaárstöð – Komdu í heimsókn!

Vorið er komið í Elliðaárstöð! Hér er nánast alltaf logn og þegar sólin skín og hiti er í lofti er þetta hin mesta paradís. Mörg vilja meina að Elliðaárstöð sé Central Park Reykjavíkur en hér er gott að eiga samverustund með fjölskyldu og vinum. Svæðið bíður upp á svo fjölmargt. Skógurinn, árnar og náttúran í... Read more »
Vorið er komið í Elliðaárstöð! Hér er nánast alltaf logn og þegar sólin skín og hiti er í lofti er þetta hin mesta paradís. Mörg vilja meina að Elliðaárstöð sé Central Park Reykjavíkur en hér er gott að eiga samverustund með fjölskyldu og vinum.
Svæðið bíður upp á svo fjölmargt. Skógurinn, árnar og náttúran í heild sinni gerir svæðið að skemmtilegum leikvelli sem fjölskyldur geta leikið frjálst, farið í lautarferð eða tekið þátt í ratleik á svæðinu sem felst í því að skanna QR kóða og svara orkutengdum spurningum.
Hér eru öll velkomin en nú hefur nýtt kaffihús verið opnað, Elliði. Þar er hægt að fá hinar ýmsu kræsingar allt frá kökum til smurbrauðs.
Uppbókað er í fræðslu skólahópa á vorönn en hægt er að skrá sig á póstlista skólavina hér. Vatnsleikjasvæðið er hins vegar alltaf opið og hægt er að nýta úti nestisaðstöðuna.
Verið velkomin í Elliðaárstöð, áfangastað orku og náttúru!