17. október 2019

Leki úr hitaveituholu í Grafarvogi

Leki úr hitaveituholu í Grafarvogi
Um 70°C heitt vatn streymir nú úr hitaveituholu við golfvöllinn í Grafarvogi og út i sjó. Um er að ræða holu sem hefur ekki verið virkjuð en leka fór úr henni fyrr í dag. Talið er orsökina megi finna í framkvæmdum Veitna í Geldinganesi þar sem verið er að örva borholu með því að dæla vatni undir þrýstingi í hana.  Búið er að girða af svæðið í kringum holuna og merkja en búast má við að vatn komi úr henni á meðan á framkvæmdum stendur í Geldinganesi, eða næstu tvær vikur. Eru íbúar í Grafarvogi beðnir að fara varlega séu þeir á ferð þarna og virða girðingar og merkingar.