10. mars 2022

Kolefnishlutlaus Ljósleiðari

Kolefnishlutlaus Ljósleiðari

Kolefnisspor Ljósleiðarans á árinu 2021 var ekkert. Markvisst hefur verið unnið að því að draga úr kolefnisspori starfseminnar, en fjarskiptanet fyrirtækisins tengist nú fleiri en 100 þúsund heimilum og öll helstu fjarskiptafyrirtæki landsins veita þjónustu sína um kerfi Ljósleiðarans. Síðasta hjallanum á þeirri leið að gera Ljósleiðarann kolefnishlutlausan var náð með því að jafna það sem út af stóð á árinu í gegnum Votlendissjóð.

Beðið um kolefnisspor í innkaupum

„Við höfum gripið til ýmissa aðgerða í rekstrinum til að minnka kolefnissporið en það sem skilur eftir stærst spor eru framkvæmdir verktaka á okkar vegum,“ segir Erling Freyr Guðmundsson framkvæmdastjóri Ljósleiðarans. „Við eigum gott samtal við verktakana um hvernig mætti draga úr losuninni enda ljóst að við þurfum öll að leggja okkar af mörkum til að árangur náist í baráttunni gegn loftslagsvánni. Sparneytnari vinnuvélar og bílar sem ganga fyrir grænni orku eru leiðir sem má fara,“ segir Erling Freyr.

Uppbygging framundan

Nú stendur yfir hjá Ljósleiðaranum tenging heimila og fyrirtækja í Reykjanesbæ. „Hugur okkur stendur til þess að efla mjög getu fjarskiptakerfanna í landinu en nú er burðarásinn í þeim orðinn 30 ára gamall. Það er gott til þess að hugsa að sú vegferð verði farin án þess að hún skilji eftir sig aukinn vanda hjá framtíðarkynslóðum, því það eru jú þær sem við erum ekki síst að þjóna með uppbyggingu Ljósleiðarans,“ segir Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ljósleiðarans.