24. janúar 2025

Keyrðu 110 sinnum til tunglsins!

Keyrðu 110 sinnum til tunglsins!

Árið 2024 var viðburðaríkt hjá Orku náttúrunnar en meðal stórra verkefna hjá okkur var opnun þriggja glæsilegra Hleðslugarða; í Öskjuhlíð, við Glerártorg á Akureyri og við Digranesgötu í Borgarnesi.

Einnig bættum við við hverfahleðslum í bæði Reykjavík, þar sem 20 hleðslutengi voru sett upp á fimm nýjum staðsetningum, og í Kópavogi þar sem 98 hleðslustöðvar voru settar upp á fjórtán stöðum. Auk þess þéttum við hleðslunetið um allt land með opnun fjölmargra hverfa- og hraðhleðslustöðva. Þessi uppbygging auðveldaði rafbílaeigendum enn frekar að aka um land og borg á þægilegan og umhverfisvænan hátt.

Til viðbótar þessu bættist við fjöldi ánægðra viðskiptavina í hleðsluáskrift sem tryggir áhyggjulausa hleðslu á heimilum og fyrirtækjum.

Til gamans tókum við saman kílómetrafjölda sem viðskiptavinir okkar óku á rafmagni á árinu 2024 og hversu mikið eldsneyti þeir spöruðu með notkun rafbíla.

  • 84.254.480 kílómetrar eknir á rafmagni: Það jafngildir 60% af vegalengdinni til sólarinnar, 110 ferðum til tunglsins og til baka, eða 2.102 ferðum í kringum jörðina!
  • 6.319.086 lítrar af eldsneyti sparaðir: Þetta er eins og að fylla 80.000 bensíntanka og sparar 14.534 tonn af CO₂-losun.

Eins og sjá má spara ökumenn dágóða upphæð í eldsneytiskostnað og draga jafnframt mjög úr kolefnisspori með því að velja rafbíl. Með frekari uppbyggingu hleðsluinnviða verður aðgengi fyrir rafbílaeigendur enn betra og auðveldar þannig fleirum að styðja við orkuskiptin og stíga skrefið inn í græna framtíð.

Við hjá Orku náttúrunnar höldum áfram að leggja okkar af mörkum árið 2025 með frekari uppbyggingu hleðsluinnviða og áætlum að bæta við fjölmörgum nýjum staðsetningum á hleðslukortið okkar.