Nú er farið að líða að jólum og komið að aðventudagatali Elliðaárstöðvar þar sem hægt er að njóta samveru með fjölskyldunni og fræðast um vísindi á aðventunni. Jólalitagleði! Það sem þarf er: mjólk, tveir mismunandi matarlitir, piparkökuform, uppþvottalögur (eða einhverskonar sápa) og eyrnapinnar. Þetta er allt eitthvað sem er til á flestum heimilum, sérstaklega þegar...
Read more »Nú er farið að líða að jólum og komið að aðventudagatali Elliðaárstöðvar þar sem hægt er að njóta samveru með fjölskyldunni og fræðast um vísindi á aðventunni.
Jólalitagleði!
Það sem þarf er: mjólk, tveir mismunandi matarlitir, piparkökuform, uppþvottalögur (eða einhverskonar sápa) og eyrnapinnar. Þetta er allt eitthvað sem er til á flestum heimilum, sérstaklega þegar jólin nálgast.
Það sem þarf að gera er einfaldlega að hella mjólk á disk, koma piparkökuformi fyrir á miðjan diskinn, hella örfáum dropum af matarlit inn í formið og svo velja annan lit og hella nokkrum dropum af honum fyrir utan formið. Næst þarf að setja sápu á endann á eyrnapinna og setja smá sápu í matarlitinn og fylgjast vel með. Til að gera þetta enn jólalegra mætti hafa matarlitinn í jólalitum og jafnvel setja glimmer með!