19. desember 2024

Jólakúluvarp!

Jólakúluvarp!
Nú fer að líða að jólum og tilvalið að stytta stundir með því að prófa nýja vísinda-föndur-tilraun. Hvað þarf: stórar íspinnastangir, lok af plastflösku, gúmmíteygjur, pappír, skæri og límstifti. Það getur verið gaman að mála stangirnar í flottum jólalitum til að gera tilraunina enn jólalegri! Hvað á að gera: staflið að minnsta kosti átta stöngum... Read more »

Nú fer að líða að jólum og tilvalið að stytta stundir með því að prófa nýja vísinda-föndur-tilraun. Hvað þarf: stórar íspinnastangir, lok af plastflösku, gúmmíteygjur, pappír, skæri og límstifti. Það getur verið gaman að mála stangirnar í flottum jólalitum til að gera tilraunina enn jólalegri! Hvað á að gera: staflið að minnsta kosti átta stöngum saman og festið saman með gúmmíteygjum á báðum endum. Festið tvær stangir á annan endann með teygjum og límið flöskutappann á lausa endann á annarri þeirra. Stingið svo annarri inn í staflann fyrir ofan neðstu stöngina þannig að tappinn snúi upp. Að lokum þarf að festa saman miðjuna með einni teygju í viðbót og þá er jólakúluvarpan tilbúin! Næst þarf að velja hverju á að skjóta upp í loftið. Ef þið hafið aðgang að prentara er tilvalið að prenta út skjalið að neðan og búa til ykkar eigin Elliðaárstöðvar jólakúlu sem hægt er að láta fljúga. Til að einfalda er einnig hægt að notast við bómullahnoðra, einsskonar snjóbolta, til að skjóta upp í loft. Þegar jólakúlan er tilbúin þarf að setja hana í tappann, halda við neðra prikið og þrýsta því efra niður og svo sleppa!