13. nóvember 2026

Jarðhitagarður og orkuskipti í brennidepli á COP31

Jarðhitagarður og orkuskipti í brennidepli á COP31
Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar, tók þátt í loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP31, í Antalya í Tyrklandi sem nú stendur yfir. Á dagskrá hans voru meðal annars umræður um hringrásarlausnir og orkuskipti í samgöngum, samtöl við frumkvöðla í loftslagslausnum og fundir með fulltrúum norrænna fjármálastofnana og fyrirtækja í orku- og tæknigeiranum.

Á ráðstefnunni gafst tækifæri til að miðla reynslu ON og ræða hvernig þekking, nýsköpun og samstarf geta stutt við orkuskipti og aukna verðmætasköpun. Reynsla Íslands af nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa og uppbyggingu innviða á erindi víða, um leið og alþjóðlegt samstarf getur opnað ný tækifæri hér heima.

Jarðhitagarður sem dæmi um hringrásarnýtingu

Árni Hrannar tók þátt í hringborðsumræðum á vegum Nordic Innovation í Norræna skálanum undir yfirskriftinni „Barriers to scaling circular solutions: key learnings from the Nordic countries“. Þar fjallaði hann um Jarðhitagarð ON og tækifærin sem felast í fjölnýtingu jarðhita en í Jarðhitagarðinum geta fyrirtæki byggt starfsemi sína á aðgangi að endurnýjanlegri raforku, varma og öðrum auðlindastraumum við Hellisheiðarvirkjun. Þannig skapast tækifæri til að nýta auðlindina betur og auka verðmætin sem hún skilar.

Umræðurnar snerust um hvernig koma mætti hringrásarlausnum úr þróun og tilraunaverkefnum í viðskiptalegan rekstur og auka útbreiðslu þeirra á alþjóðavettvangi. Sérstaklega var horft til fjármögnunar, þekkingar, samstarfs, markaðsaðgangs og hindrana í regluverki.

Við hringborðið komu saman fulltrúar fyrirtækja, fjárfesta og norrænna stofnana. Markmiðið var að greina hvernig nánara samstarf Norðurlandaþjóðanna gæti rutt hindrunum úr vegi og að skilgreina næstu skref til að hraða innleiðingu hringrásarlausna.

Norræn reynsla af orkuskiptum

Pallborðsumræður undir yfirskriftinni „Nordic Experience, Global Impact. Accelerating EV Transition“, þar sem norræn reynsla af orkuskiptum í samgöngum var til umræðu, voru einnig á dagskrá Árna Hrannars.

Með honum í pallborðinu voru Fredrik Nilzén, yfirmaður sjálfbærnimála hjá Scania, og Henrik Tegnér, framkvæmdastjóri viðskipta og samskipta hjá AFRY. Mikkel Becker-Aakervik, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Thought Leader, stýrði umræðunum.

Þátttaka í pallborðinu gaf Árna Hrannari tækifæri til að deila reynslu Orku náttúrunnar af því að styðja orkuskipti í samgöngum með uppbyggingu og rekstri hleðsluinnviða.

Frumkvöðlar og fjármögnun loftslagslausna

Árni Hrannar tók jafnframt þátt í viðburði Actions House og Goals House, alþjóðlegra vettvanga  sem tengjast sjálfbærni, loftslagsmálum og alþjóðlegum markmiðum. Þá sótti hann sameiginlegan viðburð Norræna fjárfestingarbankans, Nefco – the Nordic Green Bank og Norræna þróunarsjóðsins. Jafnframt átti hann fundi með fulltrúum þessara stofnana og aðila á borð við Nordic Energy, Green Power Denmark, Outokumpu og COWI.

Samtöl af þessu tagi eru mikilvægur vettvangur til að efla tengsl, skiptast á þekkingu og kanna samstarfstækifæri. Fyrir ON tengjast þau áframhaldandi vinnu við ábyrga auðlindanýtingu, nýsköpun og þróun lausna sem skapa verðmæti úr endurnýjanlegri orku.

„Við hjá ON höfum reynslu af því hvernig nýting endurnýjanlegrar orku og uppbygging innviða geta stutt við orkuskipti og skapað verðmæti fyrir samfélagið. Á COP31 gafst gott tækifæri til að miðla þeirri reynslu og læra af öðrum. Samtölin undirstrika líka mikilvægi samstarfs fyrirtækja, frumkvöðla og fjármögnunaraðila til að koma góðum hugmyndum í framkvæmd. Þar sjáum við spennandi tækifæri, meðal annars í fjölnýtingu jarðhita og áframhaldandi þróun Jarðhitagarðsins,“ sagði Árni Hrannar að lokinni þátttöku sinni á COP31.