15. júlí 2024

Jarðhitaskóli Sameinuðu þjóðanna í heimsókn í Hellisheiðarvirkjun

Jarðhitaskóli Sameinuðu þjóðanna í heimsókn í Hellisheiðarvirkjun

Nemendur á umhverfislínu Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna komu í heimsókn til okkar í Hellisheiðarvirkjun til að fræðast um jarðhitavinnslu og helstu umhverfismál sem Orka náttúrunnar vinnur að.

Jarðhitaskóli SÞ miðar að því að aðstoða þróunarlönd í því að verða öflugri í jarðhitaleit og í þróun jarðvarmanotkunar. Í heimsókninni á dögunum skoðuðu nemendurnir meðal annars landgræðslusvæðin okkar en Orka náttúrunnar leggur mikla áherslu á að koma vel fram við náttúruna og endurheimta náttúruleg vistkerfi svæðisins.

Hér má sjá nánar um landgræðslumál ON.