6. september 2020

Jarðborinn Nasi ræstur í Bolholti

Jarðborinn Nasi ræstur í Bolholti
Í vikunni munu framkvæmdir á lóð Veitna við Bolholt 5 í Reykjavík hefjast formlega þegar jarðborinn Nasi verður settur í gang. Um er að ræða vinnu við eina gjöfulustu heitavatnsborholu Veitna sem hefur þjónað borgarbúum frá árinu 1963. Nú er svo komið að þrenging er í holunni og hrun sem veldur því að dregið hefur úr afköstum hennar. Því er nauðsynlegt að fara í framkvæmdina til að rýma, hreinsa og fóðra holuna áður en hún verður endurvirkjuð fyrir næsta vetur.