5. apríl 2022
Innviðir fyrir hleðslu rafbíla byggðir upp í Mosfellsbæ

Veitur og Mosfellsbær hafa gert með sér samkomulag um uppbyggingu innviða fyrir hleðslu rafbíla í bænum. Markmiðið er að koma upp hleðslubúnaði fyrir rafbíla þeim til afnota sem síður geta komið slíkum búnaði upp heima fyrir sem og starfsfólk Mosfellsbæjar.