Ingunn og Valgerður í nýjum störfum hjá ON

Þær Ingunn Gunnarsdóttir og Valgerður B. Eggertsdóttir hófu nýlega störf hjá Orku náttúrunnar í nýjum störfum, Valgerður sem leiðtogi hagaðilatengsla og sjálfbærni og Ingunn sem leiðtogi nýsköpunar og mun hún meðal annars stýra uppbyggingu Nýsköpunarkjarna sem verður staðsettur í Jarðhitagarði Orku náttúrunnar.
Valgerður er útskrifuð sem lögfræðingur frá Háskóla Íslands og með LL.M gráðu í Evrópurétti frá Edinborgarháskóla. Hún starfaði í innviðaráðuneytinu frá árinu 2016 sem lögfræðingur og staðgengill skrifstofustjóra á skrifstofu samgangna. Áður en Valgerður hóf störf hjá stjórnarráðinu starfaði hún við lögmennsku, lengst af hjá ADVEL lögmönnum. Samhliða þeim störfum sinnti hún einnig stundakennslu í Evrópu- og samkeppnisrétti við Háskólann á Bifröst um nokkurra ára skeið. Valgerður hefur því víðtæka reynslu af stefnumótun, opinberri stjórnsýslu og löggjafarvinnu sem nýtist henni vel í nýju starfi hjá ON.
Ingunn er með doktorspróf í umhverfis- og auðlindafræði frá Háskóla Íslands þar sem hún rannsakaði sjálfbæra orkuframtíð Íslands. Hún er með meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu (MPA) með áherslu á umhverfismál frá Columbia háskóla í New York og BA-gráðu í umhverfis- og jarðfræði frá Furman háskóla í Suður-Karólínu.
Áður en Ingunn hóf störf hjá ON starfaði hún hjá Landsvirkjun sem sérfræðingur í Viðskiptagreiningu og þróun markaða. Hún hefur einnig starfað sem sérfræðingur í úrgangsmálum hjá Umhverfisstofnun auk þess að veita ráðgjöf og stunda rannsóknir á umhverfis- og orkumálum. Þá hefur Ingunn setið í stjórn Félags umhverfisfræðinga á Íslandi (FUMÍ) og skrifað þó nokkrar ritrýndar greinar um orkumál og sjálfbæra þróun þeirra.
Frábær viðbót við öflugan hóp starfsfólks
„Við erum virkilega ánægð með að hafa fengið þær Valgerði og Ingunni til starfa og eru þær frábær viðbót við öflugan hóp starfsfólks Orku náttúrunnar. Þær eru báðar sérfræðingar á sínum sviðum og munu kraftar þeirra nýtast vel í þessum nýju störfum hjá okkur sem ætlað er að bæta tengsl við alla okkar hagaðila enn frekar sem og að efla okkar góða nýsköpunarstarf,“ segir Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri ON.