25. janúar 2023

Hverfahleðslur í Reykjanesbæ

Hverfahleðslur í Reykjanesbæ

Orka náttúrunnar og Reykjanesbær eru að hefja uppbyggingu á hverfahleðslu líkt og í Reykjavík og Garðabæ. Um er að ræða 20 staðsetningar með 50 tengjum. Fyrstu Hverfahleðslurnar voru settar upp í dag og eru þær við Sundmiðstöðina og við Ráðhúsið. Undirbúningur á uppsetningu á fleiri stöðum er í fullum gangi og þegar snjó tekur að leysa þá munu þær rísa hver á fætur annarri.

Þess má geta að við settum upp Hverfahleðslur með fjórum tengjum við Fjölbrautaskóla Suðurnesja í desember og hefur hún fengið mjög góðar móttökur. Fjölbrautaskóli Suðurnesja ætla að bæta um betur og það mun rísa ný hraðhleðslustöð um leið og færi gefst.

Rafbílaeigendur í Reykjanesbæ ánægjan er öll okkar. Við höfum lengi unnið að uppbyggingu hleðsluinnviða í Reykjanesbæ svo við getum þjónustað betur rafbílaeigendur svæðisins.

Sjá meira um Hverfahleðslur ON

Eina sem þú þarft að gera er að sækja ON-appið og byrja að hlaða.