Hvað getur notkun á köldu vatni sagt okkur um atferli manna? Árið 2020 var gerð rannsókn þar sem rennsli vatns var skoðað yfir daginn. Í ljós kom að við notum sem nemur 140 lítrum af vatni á hvern íbúa. Til samanburðar benda heimildir til að neysluvatnsnotkun í löndum Evrópu liggi á bilinu frá um 110...
Read more »Hvað getur notkun á köldu vatni sagt okkur um atferli manna?
Árið 2020 var gerð rannsókn þar sem rennsli vatns var skoðað yfir daginn. Í ljós kom að við notum sem nemur 140 lítrum af vatni á hvern íbúa. Til samanburðar benda heimildir til að neysluvatnsnotkun í löndum Evrópu liggi á bilinu frá um 110 til 260 L/íbúa/sólarhring. Það má segja að þessi rannsókn segi hálfgerðar gagnasögur, því út frá gögnunum má álykta hvað er í gangi hverju sinni hjá borgarbúum.
Skoða rannsókn.
Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að notkun á vatni er mjög lítið á nóttinni en eykst milli kl. 6 og 8 á morgnanna. Þá er líklegt að fólk sé að fara á klósettið og í sturtu.
Vatnsnotkunin helst stöðug yfir daginn þar til kemur að kvöldmatartíma en þá eykst notkunin mikið og helst þannig eftir kvöldi.