22. apríl 2026
Hvað er þetta REMIT?

REMIT er reglugerð ESB sem í einföldu máli fjallar um heiðarleika og gagnsæi á heildsölumörkuðum með raforku. Þar er horft til svipaðra reglna og þekktar eru og gilda á fjármálamörkuðum. Lög sem byggja á reglugerðinni taka gildi um áramót og krefst það töluverðs undirbúnings sem starfsfólk Orku náttúrunnar vinnur nú að.