4. nóvember 2024

Hrollvekjandi óperuganga

Hrollvekjandi óperuganga
Deyjandi kvennabósi, vofur og afturgöngur voru meðal óhugnanlegra vera sem birtust á Óperuhrolli í Elliðaárstöð. Í tilefni af hrekkjavöku og Óperudögum í Reykjavík var haldin óperuganga í Elliðaárdal. Gangan hófst í Hinu húsinu þar sem fjórar vofur birtust og sungu nokkur hryllileg lög. Að því loknu tóku hrollvekjandi trúðar við og leiddu gönguna að Rafstöðinni.... Read more »

Deyjandi kvennabósi, vofur og afturgöngur voru meðal óhugnanlegra vera sem birtust á Óperuhrolli í Elliðaárstöð. Í tilefni af hrekkjavöku og Óperudögum í Reykjavík var haldin óperuganga í Elliðaárdal. Gangan hófst í Hinu húsinu þar sem fjórar vofur birtust og sungu nokkur hryllileg lög. Að því loknu tóku hrollvekjandi trúðar við og leiddu gönguna að Rafstöðinni. Þar hafði verið útbúin sannkölluð draugastöð þar sem ýmsar verur brugðu á leik og söng.