Öflugur hópur stjórnenda Orkuveitunnar tilnefndur til Stjórnunarverðlauna Stjórnvísi 2026

Öflugur hópur stjórnenda innan Orkuveitunnar og dótturfélagsins Orku náttúrunnar hefur verið tilnefndur til Stjórnunarverðlauna Stjórnvísi 2026. Tilnefningarnar eru frábær viðurkenning á faglegum vinnubrögðum, framsýni og öflugu leiðtogastarfi.
Orkuveitan fagnar þessum tilnefningum og er afar stolt af þeim stjórnendum sem hljóta þessa viðurkenningu fyrir framlag sitt til stjórnunar og umbóta í íslensku atvinnulífi.
Við óskum Kristrúnu Dröfn Jóhannsdóttur, forstöðukonu Innri þjónustu, Birnu Björnsdóttur, forstöðukonu orkuframleiðslu, Hjálmari Helga Rögnvaldsyni, forstöðumanni viðskiptaþróunar og orkumiðlunar, Tinnu Jóhannsdóttur, forstöðukonu markaðsmála og sjálfbærni, Baldri Erni Arnarsyni, mannauðsleiðtoga, og Árna Hrannari Haldssyni, framkvæmdastjóra ON innilega til hamingju með tilnefningarnar.