19. ágúst 2022
„Hjáveituaðgerð“ í fráveitukerfinu

Vegna endurnýjunar á yfirfallsdælum þarf að stöðva starfsemi skólpdælustöðvarinnar í Faxaskjóli í a.m.k. þrjár vikur, frá og með deginum í dag, föstudeginum 19. ágúst. Í stað þess að sleppa skólpi óhreinsuðu í sjó, eins og þurft hefur þegar bilanir koma upp eða sinna þarf viðhaldi, ætlar starfsfólk Veitna að reyna nýja aðferð og dæla skólpinu fram hjá dælustöðinni og í hreinsistöð. Tilrauninni má líkja við hjáveituaðgerð en bráðabirgðalagnir verða lagðar ofanjarðar og öflugum dælum komið fyrir utan við stöðina í Faxaskjóli. Bráðabirgðalagnirnar verða tengdar við stöðina í dag.