22. júní 2020

Heitt vatn lak í Varmá í Mosfellsbæ

Heitt vatn lak í Varmá í Mosfellsbæ
Leki kom að heitavatnslögn við dælustöð Veitna í Mosfellsbæ með þeim afleiðingum að nokkuð magn af heitu vatni fór út í Varmá. Búið er að stöðva lekann og leit að biluninni stendur yfir. Eftirlitsaðilar hafa verið upplýstir um málið. Mynd: Gasskiljunarstöð við dælustöð hitavetu í Mosfellsbæ.