14. febrúar 2020

Heitavatnslaust í Rangárþingum og Ásahreppi

Heitavatnslaust í Rangárþingum og Ásahreppi
UPPFÆRT - kl. 15:00 Rafmagnsleysi vegna bilana hjá RARIK á veitusvæði Rangárveitna er nú yfirstaðið. Dælur hitaveitunnar starfa því að mestu leyti með eðlilegum hætti. Nokkurn tíma tekur að ná upp þrýstingi á kerfi hitaveitunnar en íbúar í Rangárþingi ytra og eystra og Ásahreppi ættu að vera komnir með heitt vatn þegar kvöldar.  Starfsfólk Veitna er nú að flytja varaafl á staðinn sem nýta má verði frekara rafmagnsleysi á svæðinu.  ----------------------------------------------------------