18. nóvember 2024
Guðmundur Reynaldsson gengur til liðs við Carbfix

Guðmundur Reynaldsson hefur bæst í ört stækkandi hóp Carbfix og mun bera ábyrgð á hugverkum fyrirtækisins. Ráðning Guðmundar er liður í því að styrkja nýsköpunarstarf Carbfix enn frekar í viðleitni fyrirtækisins til að þróa lausnir gegn loftslagsbreytingum.