21. nóvember 2022

Fráveitumál í hlaðvarpi

Fráveitumál í hlaðvarpi
Í nýjasta hlaðvarpi Samorku er spjallað við sérfræðinga Veitna í fráveitu, þau Fjólu Jóhannesdóttur og Hlöðver Stefán Þorgeirsson. Þau segja frá þeim verkefnum sem þau fást við en fráveitan veitir þjónustu sem enginn getur verið án en fæstir leiða hugann að í amstri dagsins. Hún er mikilvægt heilbrigðis- og hreinlætismál í heiminum öllum. Fráveitan flytur frárennsli og skólp heimila og fyrirtækja, og regnvatn frá götum og lóðum í sjó með viðkomu í hreinsistöð.