1. júlí 2022
Framkvæmdir að hefjast á Hlemmi

Nú styttist í framkvæmdir á fyrsta áfanga á Hlemmi en þær hefjast síðar í þessum mánuði og mun torgið fá allsherjar yfirhalningu á næstu þremur árum. Um er að ræða samvinnuverkefni Veitna og Reykjavíkurborgar en auk þess hefur Borgarlínu verið úthlutað svæði undir starfsemi sína á torginu. Fyrsti áfangi er á Laugavegi, frá Snorrabraut að húshorninu til móts við Hlemm Mathöll. Í sumar verða lagnir og yfirborð einnig endurnýjað á Rauðarárstíg, frá Bríetartúni að Hlemmtorgi.