1. nóvember 2019

Framkvæmdasvæði á Bæjarhálsi færist til

Framkvæmdasvæði á Bæjarhálsi færist til
Hitaveituframkvæmdunum við Bæjarhálsinn miðar áfram og í næstu viku færist framkvæmdasvæðið austar. Mánudaginn 4. nóvember verður umferð breytt eins og sést á myndinni. Gert er ráð fyrir að þessi breyting vari fram um miðjan desember en að götustubburinn frá hringtoginu við Tunguháls að Hraunbæ verði opnaður um miðjan nóvember.