2. mars 2022

Framkvæmdastjóri Veitna lætur af störfum

Framkvæmdastjóri Veitna lætur af störfum
Gestur Pétursson, framkvæmdastjóri Veitna, hefur látið af störfum. Hrefna Hallgrímsdóttir forstöðumaður hitaveitu, Jón Trausti Kárason forstöðumaður vatns- og fráveitu og Jóhannes Þorleiksson forstöðumaður rafveitu munu skipta með sér verkum framkvæmdastjóra þar til nýr aðili tekur til starfa. Stefnt er að því að auglýsa starf framkvæmdastjóra á næstu dögum. Stjórn Veitna þakkar Gesti fyrir ánægjulegt og árangursríkt samstarf á þeirri miklu umbreytinga og straumlínu vegferð sem fyrirtækið hefur verið í frá því hann hóf störf í ágúst 2019.