22. desember 2020
Förum varlega með rafmagnið

Það er margt í lífinu sem þarf rafmagn. Við kveikjum ljósin, opnum ísskápinn oft á dag, kveikjum á sjónvarpinu, setjum símann í hleðslu og núna líka bílinn.
Á þessum árstíma er hvað mest notkun á rafmagni og því vert að leiða hugann að nokkrum góðum ráðum til að hafa á bakvið eyrað:
- Oft má ráða af ljósum og öðrum raftækjum hvort eitthvað er athugavert við rafkerfið
- Ef skipta þarf oftar um perur í einu ljósastæði en öðru getur það m.a. bent til bilunar
- Oft eru mörg raftæki í gangi inni í hverju herbergi og jafnvel notuð fjöltengi. Við þessar aðstæður er mjög mikilvægt að skipta um brotnar klær, ganga úr skugga um að allar rafmagnssnúrur séu heilar og að hvergi sjáist í bera víra
- Notum aðeins fjöltengi með rofa og pössum að hlaða ekki of mörgum rafmagnstækjum á eitt fjöltengi
- Raftæki geta ofhitnað ef þeim er staflað þétt ofan á hvert annað í lokuðu rými
- Þegar slökkt er á sjónvarpi með fjarstýringu helst straumurinn áfram á því og brunahættan er stöðugt fyrir hendi – hvort sem tækin eru ný eða gömul
- Látum logandi kerti aldrei standa ofan á raftæki
- Hendum gömlum jólaljósum sem eru úr sér gengin
- Notum ætíð ljósaperur af réttri gerð, stærð og styrkleika
- Gætum þess að brennanleg efni séu ekki nálægt jólaljósum
- Óvarinn rafbúnaður getur valdið raflosti
- Vörum okkur á óvönduðum jólaljósum
- Inniljós má aldrei nota utandyra
- Förum eftir leiðbeiningum um uppsetningu og notkun á öllum raftækjum
- Kíktu á reykskynjarann. Það er góður siður að skipta um rafhlöðu reglulega og sérstaklega fyrir jólin