29. nóvember 2019
Förum út að leika!

Í ár eru öll fallegu jólaljósin á Novasvellinu á Ingólfstorgi knúin af rafmagni frá Orku náttúrunnar. Alls eru 100.000 ljósaperur notaðar til að lýsa það upp í ár og er ljósþakið ansi tilkomumikið.
Skautasvellið er opið frá hádegi hvern dag út allan desember og því tilvalin leið til að nýta orkuna við útiveru og samveru og hlaða þannig í minningabankann!
Á aðventunni verða ýmsir skemmtilegir viðburðir á svellinu sem enginn vill láta fram hjá sér fara. Fylgist með Facebook síðum ON og Nova.
- 15. des. kl. 18:00 – Valdimar & Sigríður Thorlacius
- 23. des. kl. 18:00 – Bartónar
Nánari upplýsingar um Novasvellið hér
Sjáumst á svellinu í desember!
*Það er frítt svellið fyrir þá sem koma með eigin búnað en einnig er boðið upp á skautamiða þar sem skautar, hjálmar og skautagrindur fást gegn vægu gjaldi á staðnum.
